Gistiheimilið Eyvindará

Velkomin

 

Staðsetning

View Larger Map How to find? By road nr. 94 You leave Egilsstaðir in the direction of Seyðisfjörður. From road 1 you turn left onto road nr. 93, but by the right turn to Seyðisfjörður, you drive further 200 m. on road nr. 94 in the direction of Borgarfjörður. Turn left to the farm. Totally you drive 2 km from Egilsstaðir.

 

Fréttir

Fréttir   Búið er að taka í notkun 10 ný 2ja manna herbergi með sérinngangi og verönd fyrir hvert herbergi. Fallegt útsýni er til Egilsstaða. Herbergin standa hlið við hlið en hvert með sinn inngang.       Nú á tímum grænnar ferðaþjónustu hafa eigendur Gistiheimilisins Eyvindará II á Fljótsdalshéraði ákveðið að láta setja upp hjá sér hreinsivirki sem hreinsar allt skólp frá starfsemi gistiheimilisins. Samið var við Bólholt ehf um leigu á hreinsivirkinu. Á Eyvindará II er frárennslið aðg reint með þeim hætti að hvorki fer regnvatn né baðvatn í hreinsivirkið. Allt frárennlið endar í náttúrulegum viðtakanda enda orðið alveg skaðlaust.

 

Gallery

{gallery}images/all{/gallery}

Við bjóðum uppá meira en bara gistingu

 

Náttúra

Gistiheimilið Eyvindará er tilvalinn gististaður fyrir útivistarfólk. Gönguferðir um Austfirði og Fljótsdalshérað. Má þar nefna: Stapavík, Stórurð, Hengifoss, Bjólfinn, Fardagafoss, Strútsfoss og einnig Gerpissvæðið á Austfjörðum.

 

Hvataferðir

Gistiheimilið Eyvindará býður uppá gistingu og mat fyrir: Vinnuhópa, saumaklúbba, orlofsferðir, ferðir fyrir eldri borgara, íþrótta og skíðafélög. Á veturna er þetta einnig tilvalinn gististaður. Því stutt er bæði í skíðasvæðið í Stafdal (15 km) og Oddskarð (60 km). og fyrir þá sem hafa áhuga á snjósleðaferðum

 

Veiði

Hér á Gistiheimilinu Eyvindará er frábært fyrir veiðimenn að gista t.d. fyrir þá sem fara á hreindýraveiðar, rjúpu, gæs silungs og laxveiði og sjóstöng á fjörðunum. Stutt er í Selfljót og aðrar ár og vötn á Héraði og Austfjörðunum
Gistihúsið Eyvindará hefur nýlega tekið í notkun 10 ný herbergi sem öll eru glæsilega vel búin. Herbergin hafa öll sérinngang, flísalagt bað með sturtu og tvöföldu rúmi. Hvert herbergi hefur sína eigin verönd sem snýr út að grónu landi með fallegu útsýni yfir Egilsstaði og Hérað.

Á tímum grænnar ferðaþjónustu hefur gistiheimilið einnig látið setja upp hreinsivirki sem hreinsar allt skólp frá starfsemi gistiheimilisins. Á Eyvindará II er því allt frárennsli aðgreint með þeim hætti að hvorki fer regnvatn né baðvatn í hreinsivirkið.

Opið: Allt árið.
Eyvindará er staðsett í fallegu umhverfi, mikill gróður, tré og klettar setja svip á landslagið. Útsýni út Hérað, til Egilsstaða og Fella. Eyvindará er við veg nr. 94, afleggjarann til Seyðisfjarðar.

Næsta þéttbýli/sundlaug: Egilsstaðir 2 km.
Golf: Fellabær 6 km.

Gestgjafi: Sigurbjörg Inga Flosadóttir

Öll skilyrði flokka cat I og cat III eru uppfyllt og að auki eru herbergi í flokki III með sér baðherbergi.
Fjöldi rúma: 42
Flokkun gististaða: Gistiheimili
   

Sýnishorn